Sýning með verkefum eftir nemendur Listaháskóla Íslands sem tóku þátt í árlega námskeiðinu, Vinnustofan Seyðisfjörður.
Sýningarstjórar: Björn Roth og Kristján Steingrímur.
Við komum á Seyðisfjörð eina helgi en við erum ennþá komandi viku seinna. Lendingin er löng en ekki ströng. Við erum aðkomandi, framkomandi í snjókomandi bæ. Dvölin er ljúf en við erum ekkert nema tímabundnir komumenn og konumenn með hálsmen og zen: Komið, verið velkomin á Komuna okkar.
Koma stendur til 2. apríl. Opið virka daga frá kl. 15:00-21:00 og um helgar frá 14:00-21:00.