Gestalistamennirnir Åse Eg Jørgensen (DK) & Karena Nomi (DK/CAN) hafa framkvæmt könnun á vinnusambandi myndlistamanna á Seyðisfirði. Unnið verður úr þeim gögnunum sem safnast og þeim umbreytt í tréristur.
Afrakstur verkefnisins verður til sýnis í Bókabúðinni – verkefnarými mánudaginn 19. ágúst frá kl. 16:00-19:00.
Boðið verður upp á kaffi og kökur, vonumst til að sjá ykkur.