Starfsemi
Starfsemi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og framþróun myndlistar á Austurlandi. Þeim skyldum er framfylgt með sýningarhaldi, rekstri gestavinnustofa og fræðslustarfi. Miðstöðin hefur einnig umsjón með Geirahúsi, þar sem alþýðulistamaðurinn Ásgeir Jón Emilsson bjó til dauðadags.
Saga og stofnun
Árið 1997 fékk áhugamannahópur um menningu og listir, oftast nefndur Skaftfellshópurinn, húsið að Austurvegi 42 á Seyðisfirði að gjöf frá hjónunum Karólínu Þorsteinsdóttur og Garðari Eymundssyni. Skaftfell hefur verið sjálfseignarstofnun frá árinu 1998 en þegið fjárstyrki í gegnum árin bæði frá ríki og bæ. Þar er nú rekin listamiðstöð með áherslu á sýningar á samtímalistum, rekstur gestavinnustofa fyrir listamenn og fræðslustarf á öllum skólastigum.
Í stjórn stofnunarinnar sitja aðilar fyrir hönd Skaftfellshópsins; Bandalags íslenskra listamanna; gefenda hússins og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Í Skaftfelli er starfandi fagráð sem skipuleggur listræna starfsemi frá ári til ors. Forstöðumaður sinnir öllum þeim störfum er lúta að rekstri stofnunarinnar, með dyggri aðstoð stjórnar og Skaftfellshópsins.
Húsið
Skaftfell var reist af byggingameistaranum Guðfinni Jónssyni, árið 1907. Húsið er þriggja hæða, 420 fermetrar, byggt samkvæmt norskri fyrirmynd með nýklassísku yfirbragði og er mikil prýði í götumyndinni. Fyrstu árin var rekið gullsmíðaverkstæði á jarðhæðinni og veitinga- og gistihús á efri hæðum. Síðar tóku fleiri verslanir við, þar var um tíma norskt sjómannaheimili, ölstofa, veitingasala, hótel og síðast trésmíðaverkstæði Garðars Eymundssonar.
Stofnár listamiðstöðvarinnar er einnig dánarár listamannsins Dieters Roth (1930-1998). Dieter gegndi stóru hlutverki í menningarflóru Seyðfirðinga, allt frá því hann hóf að venja komur sínar á Seyðisfjörð upp úr 1990. Skaftfells-hópurinn samanstendur að miklu leyti af fólki sem naut mikilla og góðra samvista við Dieter, og er tilurð miðstöðvarinnar sprottin úr þeim frjóa jarðvegi er hann átti þátt í að skapa á Seyðisfirði.