Nýútkomna bókverkið by the rivers in the wetlands up in the mountains, atlas of iceland’s plant life with a pinhole camera er til sýnis í verslun Skaftfells. Þar ljósmyndar þýski listamaðurinn Halina Kliem plöntulíf á Íslandi án þess að notast við linsu. Hún beitir pinhole ljósmyndun við gerð verksins en þá er ljósnæmum pappír komið fyrir í lokuðum kassa og ljósi hleypt inn í gegnum títuprjónsgat. Þessi aðferðin er fremur einföld og spírandi útkoman verður ákveðin lotning á loftslagi, verðurfari og vistkerfi norðurslóða. Plönturnar voru myndaðar á Austurlandi í maí og júní 2015. “Although new images from the Dawn spacecraft […]
2015
Myndbandsverk úr Raunverulegt líf
Herðubreið – bíósalur Í tengslum við sýninguna Raunverulegt líf sem stendur yfir í sýningarsal Skaftfells verða sýnd tvö myndbandsverk laugardaginn 20. júní kl. 20:00 í Herðubreið, bíósal. My Dreams Are Still About Flying (2012) eftir Cecilia Nygren (SWE) æ ofaní æ (2014) eftir Ragnheiði Gestsdóttur & Markús Þór Andrésson. Myndbandverk Ceciliu Nygren frá árinu 2012, My Dreams Are Still About Flying fjallar um Walter Steiner, söguhetjuna í heimildamynd Werner Herzogs The Great Ecstasy of Woodcarver Steiner (frá 1974). Steiner var skíðastökvari á heimsmælikvarða og hafði að áhugamáli útskurð í tré.Í mynd Nygren hittum við Steiner fyrir í norður Svíþjóð þar sem hann vinnur sem húsvörður í kirkju og […]