Liðnar sýningar og viðburðir

Bókalestur með A. Kendra Greene

Bókalestur með A. Kendra Greene

Laugardaginn 16. júlí 2022, kl. 16:00. Roth Hornið, Skaftfell Bistró Skaftfell býður þér að hitta A. Kendra Greene, rithöfund, listamann og höfund af The Museum of Whales You Will Never See: And Other Excursions to Iceland´s Most Unusual Museums (Penguin Books). Kendra mun lesa úr bók sinni og árita eintök. Allir velkomnir! „Delightful… Exuberant… With each chapter Greene circles around her subject as if viewing it in a vitrine, approaching it from a different angles… The book is shot through with glee and irreverence.“ –The Guardian

GÚLÍGOGG – Jón Sigurpálsson, Pétur Kristjánsson, Örlygur Kristfinnsson

GÚLÍGOGG – Jón Sigurpálsson, Pétur Kristjánsson, Örlygur Kristfinnsson

17. júní – 28. ágúst 2022, Skaftfell Bistró Opnunin fer fram 17. júní kl. 16:00. Allir velkomnir. Opnunartími: eins og bistróið  Sýningin nú verður þriðji og síðasti þátturinn í þrísýningnum YPSILON GOGG. Undirbúningur að þessari sýningaröð hófst á haustmánuðum 2019 með spekúlasjónum ásamt heimspekilegum vangaveltum og mátulegu ívafi af tilfinningasemi gangvart þeirri vinátta sem safnakarlarnir í bæjunum þremur, Ísafirði, Siglufirði og Seyðisfirði höfðu ræktað með sér gegnum árin. Fyrsta sýningin, GOGG, var á Ísafirði súmarið 2020. Önnur var GÚL á Siglufirði sumarið 2021 og nú 2022 verður lokasýningin, GÚLÍGOGG, á Seyðisfirði. Sýningarstjórn og texti: Jón Sigurpálsson, Pétur Kristjánsson og Örlygur Kristfinnsson […]

Read More