Á Vesturvegg eru til sýnis nýleg verk unnin af nemendum úr 7.-8. bekk í myndmenntarvali Seyðisfjarðarskóla.
Verkefnið fól í sér að nemendur fundu efni í nærumhverfi, steina, plöntur, bein o.s.frv. Þessi efniviður var tekin, malaður og unnin úr duftinu litarefni. Því var síðan hellt á blað og við það myndast fjölbreytt lífræn form, nokkursskonar ókyrr hringlaga punktur.