Efnisorð: Vinnustofan Seyðisfjörður
Á tímabilinu 2001-2018 var Vinnustofan Seyðisfjörður haldin átján sinnum á vegum Dieter Roth Akademíunnar fyrir útskriftarnema úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands. Alls tóku 193 nemendur þátt og hafa margir þeirra í kjölfarið snúið aftur og unnið að margvíslegum verkefnum í samvinnu með Skaftfelli s.s. tekið þátt í sýningum og öðrum listviðburðum eða komið að námskeiðahaldi tengdum sjónlistum.
Leiðbeinendur Vinnustofunnar Seyðisfjörður voru Björn Roth og Kristján Steingrímur Jónsson og á námskeiðinu var lögð áhersla á að nemendur kynntust aðferðafræði svissneska listamannsins Dieter Roth og gætu nýtt sé þær sérstæðu aðstæður sem Seyðisfjörður býður upp á. Skaftfell var aðalbækistöð nemenda á meðan á námskeiðinu stóð þar sem unnið var að þróunarvinnu og listsköpun. Hverju námskeiði lauk með sýningu í sýningarsal Skaftfells.
Samstarfsaðilar námskeiðsins voru Dieter Roth Akademían, Listaháskóli Íslands, Tækniminjasafn Austurlands, Stálstjörnur og ýmsir aðrir innanbæjar aðilar.
Fyrri námskeið og sýningar:
2018, Allar leiðir slæmar
2017, Koma
2016, mars, NO SOLO
2014, nóvember, Soð
2014, mars, Veldi
2013, Trarappa
2012, Skáskegg á VHS+CD
2011, Annan hvern dag, á öðrum stað
2010, Hand Traffic In The Box
2009, Kippuhringur
2008, Harware/Sofware
2007, El Grillo
2006, Sleikjótindar
2005, Austrumu kontakts
2004, Rjómskip
2003, Akustinen Estetiikka
2002, Skaftfell, On the Rót – 80 dýr
2001, Skaftfell á Færi
Nemendur, 2011