16. maí 2006
Þriðjudaginn 16. maí kl. 15:00 til 18:00 mun hópur listamanna standa fyrir spjalli í Skaftfelli, menningarmiðstöð. Hópurinn er framlag Nýlistasafnsins til listahátíðar 2006 og mun sýningarstjórinn Amaia Pica kynna sýninguna fyrir Austfirðingum ásamt því sem listamennirnir munu spjalla um list sína og hugmyndafræði.
Aðgangur er ókeypis og léttar veitingar með spjallinu.
Listamennirnir eru:
Amalia Pica (sýningastjóri/curator)
Geirþrúður Hjörvar
Tine Meltzer
Mieke van de Voort
Ryan Parteka