Sequences VI – utandagskrá
Laugardaginn 13. apríl kl. 16:00-19:00
Hóll gestavinnustofa
Á Sequences VI mun Liam Scully (UK) sýna myndbandsverkið Quake.
Verkið er samansafn af jarðskjálfta-skotum með íbúum Seyðisfjarðar í aðalhlutverki. Viðfangsefni verksins er hin dramtíska daglega iðja, s.s. búðarferð, hittingur eða eftirmiðdags göngutúr. Snögglega er hinu hversdagslega magnað upp með sýndarjarðskjálfta.
Liam mun sýna myndbandsverkið samhliða teikningum og samklippimyndum af hans daglega lífi og samlífi með bæjarbúum. Hægt er að fylgjast með framvindu dvalar Liam´s á bloggi hans.
Viðburðurinn er hluti af Sequences VI – Utandagskrá, www.sequences.is