Um þessar mundir dvelja fimm listamenn í gestavinnustofum Skaftfells: Anna Friz frá Kanada, Åse Eg frá Danmörku, Björn Olsson, Helena Wikström og Gerd Aurell frá Svíþjóð.
Hægt verður að kynna sér viðfangsefni og verk þeirra á listamannaspjalli föstudaginn, 20. sept, kl. 13:00 í Bókabúðinni-verkefnarými.
Spjallið fer fram á ensku og verða léttar veitingar í boði.