Föstudaginn 8. október kl. 17:00 verður haldið listamannaspjall í aðalsal Skaftfells þar sem gestalistamenn Skaftfells og Skriðuklausturs fjalla um verk sín og vinnuaðferðir í máli og myndum.
Jafnframt opna tvær nýjar sýningar, á Vesturveggnum í Bistrói Skaftfells og í Bókabúðinni – verkefnarými.
Listamannaspjallið er öllum opið og fer fram á ensku.
Pappies
Ute Kledt
08.10.10 – 07.11.10
Vesturveggurinn
Beyond the walls
Lina Jaros
08.10.10 – 07.11.10
Bókabúðin – verkefnarými
Ute Kledt, f. 1963 í Þýskalandi býr og starfar í Konstanz, Þýskalandi. Hún lærði hönnun við háskólann í Konstanz og hefur frá árinu 1994 unnið sem hönnuður, málari og ljósmyndari. Hún hefur unnið sem nemi í málun og grafískri hönnun hjá ýmsum listamönnum og sýnt víða í Þýskalandi, Sviss og Austurríki.
Á sýningunni á Vesturveggnum í Skaftfelli má líta portret málverk unnin á pappadiska. Ute Kledt líkir myndum sínum við polaroid myndir eða einskonar skyndimálverk. Sýndar saman minna portretin á einskonar bútasaum þar sem kynslóðirnar mynda heild, teppi samsett af kynlegum kvistum. Safnið stendur nú í 250 myndum og stækkar stöðugt.
Ute Kledt er gestalistamaður í Skaftfelli í október.
www.annaloog.de
Lina Jaros, f. 1981 í Svíðjóð, býr og starfar í Stokkhólmi. Hún lauk námi frá Konunglega listaháskólanum í Stokkhólmi 2009. Með ljósmyndavélina að vopni kannar Lina Jaros sálfræði hins óræða eða óljósa, hún stefnir saman manngerðum hlutum og náttúrulegum í uppstillingum sem svo verða að ljósmynd þar sem mörk innra og ytra umhverfis renna saman.
Á sýningunni í Bókabúðinni má líta ljósmyndir þar sem manngert umhverfi og náttúra renna saman á einstaklega fallegan og oft fyndinn hátt.
Lina Jaros er gestalistamaður Skaftfells í Járnhúsinu í september og október.
www.linajaros.com
Honey Biba Beckerlee, f. 1978 vinnur með myndbandalist, gerninga og innsetningar. Hún er með MFA gráðu í myndlist frá Konunglegu dönsku listaakademíunni og MA gráðu í listfræði frá Goldsmiths Háskólanum í London.
Honey Biba er gestalistamaður á Skriðuklaustri í október og nóvember.