Vinnustofan Seyðisfjörður er tveggja vikna námskeið á vegum Dieter Roth Akademíunar fyrir útskriftarnema úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Námskeiðið hefur verið haldið sautján sinnum, síðan 2001, undir leiðsögn Björns Roth og Kristjáns Steingríms Jónssonar.
Þátttakendur í ár eru: Ágústa Gunnarsdóttir, Bára Bjarnadóttir, Camilla Patricia Reuter, Elísabet Birta Sveinsdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Heiðrikur Brynjolfur T á Heygum, Ieva Grigelionyté, Katrín Kristjánsdóttir, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Valgerður Ýr Magnúsdóttir, Veigar Ölnir Gunnarsson, Ylfa Þöll Ólafsdóttir, Ýmir Grönvold & Þorgils Óttarr Erlingsson.
Á námskeiðinu er lögð er áhersla á að nemendur kynnist aðferðafræði svissneska listamannsins Dieter Roth og geti nýtt sé þær sérstæðu aðstæður sem Seyðisfjörður býður upp á. Skaftfell er aðalbækistöð nemenda á meðan á námskeiðinu stendur, þar sem unnið er að þróunarvinnu og listsköpun. Námskeiðinu lýkur með sýningu í sýningarsal Skaftfells sem opnar laugardaginn 28. janúar.
Samstarfsaðilar námskeiðsins eru Dieter Roth Akademían, Listaháskóli Íslands, Tækniminjasafn Austurlands, Stálstjörnur og ýmsir innanbæjar aðilar.
Fyrri námskeið og sýningar:
2016, mars, NO SOLO
2014, nóvember, Soð
2014, mars, Veldi
2013, Trarappa
2012, Skáskegg á VHS+CD
2011, Annan hvern dag, á öðrum stað
2010, Hand Traffic In The Box
2009, Kippuhringur
2008, Harware/Sofware
2007, El Grillo
2006, Sleikjótindar
2005, Austrumu kontakts
2004, Rjómskip
2003, Akustinen Estetiikka
2002, Skaftfell, On the Rót – 80 dýr
2001, Skaftfell á Færi